Rokkbúðir fyrir 18 ára og eldri

 

Fullorðinsrokkbúðirnar okkar eru skemmtilegasta helgi ársins!

Í rokkbúðunum hittast konur (sís og trans), trans menn og kynsegin einstaklingar, 18 ára og eldri, yfir eina helgi og fá kennslu á hljóðfæri, spila saman í hljómsveit, semja lag og halda tónleika.

Í rokkbúðunum bjóðum við líka upp á ýmsar fræðandi vinnusmiðjur. Við höfum t.d. verið með vinnusmiðjur. Tónlistarfólk kemur í heimsókn og heldur hádegistónleika.  

Engin reynsla af tónlist er nauðsynleg. Þátttakendur koma úr ólíkum áttum og eru á ólíkum aldri. Engin aldurstakmörk eru á efri mörkum, ömmur og langömmur eru hjartanlega velkomnar! Þátttakendur velja sig saman í hljómsveitir svo hægt er að velja hljómsveit með fólki á svipuðum aldri eða sem hefur einhvern ákveðinn tónlistarstíl í huga. Í rokkbúðunum undanfarin ár hafa konur, trans og kynsegin einstaklingar frá tvítugu til sextugs mætt og samið og spilað tónlist saman.

Margir þátttakendur hafa aldrei snert hljóðfæri áður eða komið fram á sviði, og aðrir hafa lengi verið í tónlist en vilja prófa að semja og spila með öðrum í afslöppuðu og innilegu umhverfi. Rokkbúðirnar eru frábært tækifæri til að fá útrás, ögra sjálfum sér og upplifa valdeflandi samvinnu og sköpunargleði.

 Innifalið er dagskrá yfir heila helgi (hljóðfærakennsla, vinnusmiðjur, tónleikaheimsókn, hljómsveitaæfingar og fleira) og léttar veitingar.

Búðirnar fara fram í Tónskóla Sigursveins að Hraunbergi 2.

Það er ótrúlegt hvað hægt er að semja mikla tónlist á einni helgi! 

Að fá að vera trommari í rokkbandi í smástund er ein besta útrás og afslöppun í senn sem ég hef upplifað. Takk fyrir mig!
— Erla, þáttakandi í kvennarokkbúðum 2013

Upptaka frá lokatónleikum rokkbúða sumarið 2018. 4 brakandi fersk bönd! Fjólublá viðvörun, Trans Siberian Punk Express, Flæðingar og Pleasure Pain